Danska úrvalsdeildarfélagið Skjern hefur tryggt sér einn eftirsóttasta unga leikmann Evrópu. Sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og mun leika í grænu treyjunni næstu þrjú tímabil. Månsson kemur til Skjern eftir glæsilegt tímabil með IFK Kristianstad, þar sem hann lék lykilhlutverk hjá félaginu sem varð þrefaldur meistari á tímabilinu. Hinn 21 árs gamli leikmaður varð jafnframt markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar á nýliðnu tímabili. Þetta er annar sænski landsliðsmaðurinn sem gengur í raðir Skjern en Hugo Stuivers gekk á dögunum í raðir félagsins. Í Skjern ríkir mikil ánægja með nýjustu viðbótina í hópinn. Thomas Klitgaard, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, segir félagið afar stolt af því að hafa fengið Månsson til liðs við sig en Månsson hafði áður gengið í raðir danska félagsins HØJ Elite sem féll hinsvegar niður í dönsku B-deildina og var Svíinn með klásúlu um að geta rift samningi sínum við HØJ ef það yrði niðurstaðan, sem hann síðan gerði. „Axel er gríðarlegt efni sem fjölmörg félög hafa haft augastað á. Hæfileikar hans eru óumdeilanlegir og því erum við afar stolt af því að hann hafi valið Skjern. Hann kemur úr sterku umhverfi hjá IFK Kristianstad þar sem hann átti stóran þátt í meistaratitlinum og varð auk þess markakóngur Evrópudeildarinnar. Það segir sitt um gæði leikmannsins og möguleika hans til frekari framfara,“ sagði Klitgaard. Axel Månsson segist sjálfur spenntur fyrir næsta kafla á ferlinum. „Ég hlakka gríðarlega til að klæðast grænu treyjunni. Skjern er stórt félag í dönskum handbolta með ríka hefð og hefur verið meðal fremstu liða í mörg ár. Það er nákvæmlega á því stigi sem ég vil vera,“ sagði Svíinn. Hann segist jafnframt koma til félagsins með skýrt markmið. „Ég kem til Skjern til að berjast um verðlaun. Við erum með sterkan leikmannahóp og mikil gæði innan liðsins. Ég hlakka til að leggja hart að mér á hverjum degi, hjálpa liðinu að taka næstu skref og vonandi skapa stórar stundir fyrir félagið og stuðningsmennina.“ Månsson skrifaði nafn sitt í sögubækur IFK Kristianstad á nýliðnu tímabili. Hann skoraði alls 464 mörk og bætti þar með félagsmet yfir flest mörk á einu tímabili.Setti nýtt félagsmet

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.