Eftir að THW Kiel ákvað að láta Filip Jicha af störfum sem aðalþjálfara í gær beinast nú augu margra að Norðmanninum Börge Lund, sem er sagður líklegasti kandídatinn til að taka við einu stærsta starfi evrópsks handbolta. Börge Lund sem er 47 ára gamall þekkir vel til hjá Kiel enda lék hann með félaginu á árunum 2007 til 2010. Á þeim tíma vann hann þrjá þýska meistaratitla, tvo bikarmeistaratitla, tvo ofurbikara og varð Evrópumeistari með liðinu þegar Kiel vann Meistaradeildina árið 2010. Kiel staðfestir brottrekstur Jicha Leikstjórnandinn fyrrverandi fæddist í Bodø í Noregi og hóf atvinnumannaferil sinn þar áður en hann flutti til danska félagsins Álaborg árið 2002. Eftir fjögur ár í Danmörku lá leiðin til Þýskalands þar sem hann lék með HSG Nordhorn-Lingen, THW Kiel, Rhein-Neckar Löwen og Füchse Berlin. Lund hóf þjálfaraferil sinn árið 2013 sem spilandi þjálfari hjá uppeldisfélagi sínu í Bodø. Hann vann sinn fyrsta titil sem þjálfari með bikarsigri árið 2015 og eftir að hafa lagt skóna á hilluna árið 2016 tók hann einnig við starfi aðstoðarþjálfara norska landsliðsins. Árið 2020 tók hann við Elverum og stýrði liðinu til bikarmeistaratitils sama ár og tveggja norsku meistaratitla árin 2021 og 2022. Hann gerði Elverum að deildarmeisturum á tímabilinu sem var að ljúka og hafði þar með betur gegn stórliði Kolstad en þurfti að sætta sig við tap í undanúrslitum gegn Drammen um norska meistaratitilinn. Sem leikmaður lék Lund 216 landsleiki fyrir Noreg og skoraði í þeim 390 mörk. Hann tók þátt í fjórum Evrópumótum og einu heimsmeistaramóti. Sem aðstoðarþjálfari norska landsliðsins hefur hann einnig verið þátttakandi á þremur heimsmeistaramótum og tveimur Evrópumótum. Verði Lund ráðinn til THW Kiel snýr hann því aftur til félagsins þar sem hann fagnaði einhverjum stærstu sigrum ferils síns, nú í hlutverki aðalþjálfara. Taki Börge Lund við liðinu verður hann aðeins fjórði þjálfarinn til að stýra liði Kiel frá árinu 1993 eða í 33 ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.