Mahé orðaður við þrjú félög
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP

Kentin Mahé er án félags eftir að hann og  VfL Gummersbach náðu samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið.

Samkvæmt RT Handball er franski landsliðsmaðurinn fyrrverandi orðaður við Eurofarm Pelister í Norður-Makedóníu, THSV Eisenach og HBW Balingen en Balingen verða nýliðar í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Mahé yfirgefur Gummersbach óvænt

Mahé gekk í raðir Gummersbach sumarið 2024 frá Veszprém en hlutverk hans var að skornum skammti hjá Gummersbach og því náðu báðir aðilar samkomulagi um að leiðir myndu skilja og Frakkinn gæti fundið sér nýtt félag.

Mahé hefur meðal annars leikið með SG Flensburg-Handewitt og Veszprém og var um árabil fastamaður í franska landsliðinu. Hann lék áður með Gummerbach á árunum 2011-2013.

Mahé varð 35 ára fyrr á þessu ári.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top