Dregið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar – Valur og FH í pottunum
J.L.Long

Dregið verður í riðlakeppni Evrópudeildar karla í dag klukkan 09:00 að íslenskum tíma. Þar kemur í ljós hvaða liðum Íslandsmeistarar Vals og FH mæta í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Alls taka 32 lið þátt í riðlakeppninni en liðunum verður skipt í átta fjögurra liða riðla og fara tvö efstu lið hvers riðils áfram í umspil.

Valur verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður og FH í þeim þriðja. Fjölmörg Íslendingalið eru í keppninni að þessu sinni.

Riðlakeppnin fer fram frá 29. september til 2. desember. Þá bætast liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti í riðlum Meistaradeildarinnar við keppnina og mynda saman 28 liða umspil sem leikið verður í febrúar og mars 2027.

Sigurvegarar umspilsins komast í 16-liða úrslit ásamt þeim liðum sem enda í fimmta sæti í seinni riðlum Meistaradeildarinnar. Þaðan tekur við útsláttarkeppni með 8-liða úrslitum í apríl áður en lokahelgin, EHF Finals, fer fram 22. og 23. maí á næsta ári þar sem Evrópumeistarar verða krýndir.

Meðal sterkustu liða í riðlakeppninni eru þýsku stórliðin SG Flensburg-Handewitt, VfL Gummersbach og Bergischer HC, portúgalska liðið Benfica, sænska meistaraliðið IK Sävehof, norska stórveldið Elverum og danska liðið TTH Holstebro.

Liðin 32 sem taka þátt í riðlakeppninni eru:

  • SG Flensburg-Handewitt (Þýskaland) * Arnar Freyr Arnarssson
  • RK Nexe (Króatía)
  • MOL Tatabánya KC (Ungverjaland)
  • IK Sävehof (Svíþjóð) * Birgir Steinn Jónsson
  • RK Izvidac (Bosnía og Hersegóvína)
  • HC Eurofarm Pelister (Norður-Makedónía)
  • Benfica (Portúgal) * Breki Hrafn Árnason
  • Bidasoa Irun (Spánn)
  • Valur (Ísland)
  • Kadetten Schaffhausen (Sviss) * Óðinn Þór Ríkharðsson
  • Elverum (Noregur) *Tryggvi Þórisson
  • Limoges Handball (Frakkland)
  • HCB Karviná (Tékkland)
  • BM Granollers (Spánn)
  • Tatran Prešov (Slóvakía)
  • VfL Gummersbach (Þýskaland) * Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson, Garðar Ingi Sindrason
  • RK Sesvete (Króatía)
  • FH Hafnarfjörður (Ísland)
  • HC Buzău (Rúmenía)
  • Saint-Raphaël Var Handball (Frakkland)
  • Slovan (Slóvenía)
  • Chambéry Savoie Mont Blanc Handball (Frakkland)
  • BM Torrelavega (Spánn)
  • Logroño La Rioja (Spánn)
  • CSM București (Rúmenía)
  • Marítimo (Portúgal)
  • Aguas Santas (Portúgal)
  • Mors-Thy Håndbold (Danmörk)
  • Bergischer HC (Þýskaland)
  • TTH Holstebro (Danmörk) * Benedikt Gunnar Óskarsson, Jóhannes Berg Andrason
  • Wybrzeże Gdańsk (Pólland)
  • Hammarby (Svíþjóð)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top