Í beinni: Dregið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar
Baldur Þorgilsson

Dregið verður í riðlakeppni Evrópudeildar karla í dag klukkan 09:00 að íslenskum tíma. Þar kemur í ljós hvaða liðum Íslandsmeistarar Vals og FH mæta í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Alls taka 32 lið þátt í riðlakeppninni en liðunum verður skipt í átta fjögurra liða riðla og fara tvö efstu lið hvers riðils áfram í umspil.

Valur verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður og FH í þeim þriðja. Fjölmörg Íslendingalið eru í keppninni að þessu sinni.

Meira er hægt að lesa um dráttinn hér að neðan:

DREGIÐ Í RIÐLAKEPPNI EVRÓPUDEILDARINNAR – VALUR OG FH Í POTTUNUM

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top