Fyrrverandi þýskur landsliðsmaður yfirgefur Bundesliguna
Tom Weller /AFP

Þýska hægri skyttan David Schmidt hefur yfirgefið Bundesliguna eftir 14 tímabil og samið við gríska meistaraliðið Olympiacos. Hann gengur í raðir Olympiacos frá Göppingen.

Schmidt greindi frá því fyrr í sumar að hann hygðist leita á ný mið og hefur nú verið kynntur sem nýr leikmaður Olympiacos.

Þessi 32 ára gamli örvhenti leikmaður á að baki 271 leiki og 875 mörk í þýsku úrvalsdeildinni með Rhein-Neckar Löwen, TSG Friesenheim, TVB Stuttgart, Bergischer HC og síðast Frisch Auf Göppingen.

Schmidt lék einnig 25 A-landsleiki fyrir Þýskaland og tók þátt í bæði Evrópu- og heimsmeistaramótum.

Hjá Olympiacos er honum ætlað að styrkja lið sem stefnir á áframhaldandi yfirburði á heimavelli og góðan árangur í Evrópukeppni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top