Gummersbach kynnir glæsilegar keppnistreyjur
Gummersbach Facebook

Þýska stórliðið VfL Gummersbach hefur afhjúpað nýjar heima- og útitreyjur sínar fyrir tímabilið 2026/27 og hafa þær vakið mikla athygli meðal handboltaáhugamanna.

Treyjurnar eru hannaðar af Puma og hafa þegar fengið mikið lof á samfélagsmiðlum. Margir telja að erfitt verði fyrir önnur lið að toppa hönnun Gummersbach á komandi keppnistímabili.

Heimabúningurinn heldur í hefðbundna bláa liti félagsins en með nýrri og nútímalegri hönnun. Útibúningurinn er einnig frá Puma og fylgir sömu hönnunarlínu, en með öðru litavali sem gefur treyjunni áberandi yfirbragð.

VfL Gummersbach hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á sterka ímynd félagsins og nýju treyjurnar eru hluti af þeirri stefnu.

Gummersbach Facebook
Gummersbach Facebook
Gummersbach Facebook

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top