Þýski landsliðsfyrirliðinn Johannes Golla segir metnaðinn mikinn hjá MT Melsungen fyrir komandi tímabil en félagið leikur í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu sinni. Golla sneri aftur til Melsungen í sumar eftir sex ár hjá Flensburg-Handewitt. Hann lék áður með félaginu á árunum 2015 til 2018 en snýr nú aftur til liðs sem hefur fest sig í sessi meðal bestu liða Þýskalands og fær nú tækifæri til að spreyta sig í Meistaradeildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir að Melsungen unnu Evrópudeildina á síðustu leiktíð. Markmiðið er þó ekki aðeins að taka þátt. „Sem lið viljum við sýna að það þurfi að taka okkur alvarlega,“ sagði Golla í samtali við handball-world.news. Þrátt fyrir að Meistaradeildin sé nýr vettvangur fyrir Melsungen telur Golla að liðið geti náð langt í keppninni. Þá nefnir hann einnig þýsku bikarkeppnina sem eitt af stóru markmiðunum en félagið hefur nokkrum sinnum verið nálægt því að komast í úrslitahelgina, Final4. Þrátt fyrir að vera fyrirliði þýska landsliðsins gerir Golla sér grein fyrir því að hann þurfi að vinna sér inn hlutverk sitt hjá Melsungen á ný. Fyrst ætlar hann að kynnast leikkerfi Spánverjans, Roberto García Parrondo sem er á leið inn í sitt síðasta tímabil með liðið og aðlagast nýju umhverfi áður en hann tekur stærra leiðtogahlutverk innan hópsins. Hann segir félagaskiptin jafnframt fela í sér tækifæri til að þróast enn frekar sem leikmaður, enda bíði hans nýjar áherslur, nýr þjálfari og nýjar áskoranir. Melsungen sendi skýr skilaboð með komu Golla í sumar og stefnir félagið á að berjast á toppnum, bæði í þýsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeild Evrópu. Jaron Siewert tekur við liðinu eftir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.