Þýskaland og Slóvenía mætast í úrslitum EM U18
EHF

Þýskaland og Slóvenía tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik Evrópumóts U18 ára landsliða eftir sigra í undanúrslitum. Þýskaland hafði betur gegn Spáni 32-27, en Slóvenía vann sannfærandi 26-17 sigur á Danmörku.

Þjóðverjar lentu undir gegn Spánverjum í fyrri hálfleik og voru 10-11 undir þegar gengið var til búningsherbergja. Þeir sneru hins vegar leiknum algjörlega sér í hag eftir hlé og skoruðu sjö mörk gegn einu á upphafsmínútum síðari hálfleiks.

Þýskaland hélt forskotinu það sem eftir lifði leiks og tryggði sér fimm marka sigur, 32-27. Julius Pöthke var markahæstur Þjóðverja með átta mörk en Adrian Sola skoraði sjö fyrir Spán. Markverðirnir Tjorven Knackstedt og Rubén Cardeñosa voru valdir leikmenn leiksins, en Knackstedt varði 11 skot og Cardeñosa 13.

Slóvenía átti einnig frábæran síðari hálfleik gegn Dönum. Staðan var 11-10 í hálfleik en Slóvenar tóku öll völd eftir hlé og unnu að lokum níu marka sigur 26-17.

Markvörðurinn Mai Miklavčič átti stórleik í marki Slóveníu og varði 14 skot, eða 47 prósent þeirra skota sem komu á markið. Hann var, líkt og danski markvörðurinn Kale Møller, valinn leikmaður leiksins. Slóvenía hefur unnið alla sjö leiki sína á mótinu og er eina liðið sem kemur ósigrað inn í úrslitaleikinn.

Þýskaland og Slóvenía mætast því í úrslitaleiknum á sunnudag klukkan 17:30 að íslenskum tíma í Aleksandar Nikolić-höllinni í Belgrad. Danmörk og Spánn leika um bronsið sama dag klukkan 15:00. Ísland leikur gegn Ungverjum í leik um 5.sætið á mótinu á sunnudaginn en sá leikur hefst klukkan 12:30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top