Evrópudeild karla, EHF European League, fær talsvert breytt yfirbragð á næsta tímabili þrátt fyrir að fjöldi þátttökuliða verði áfram 32. Tvö íslensk lið taka þátt í keppninni í ár, Valur og FH. Aðal breytingin á keppnisfyrirkomulaginu fyrir komandi tímabil er sú að lið sem falla úr Meistaradeild Evrópu koma inn í Evrópudeildina á tveimur mismunandi stigum keppninnar. Keppnin hefst í lok september og skiptist hún í fimm hluta: riðlakeppni, umspil, 16-liða úrslit, átta liða úrslit og lokakeppni EHF Finals. Riðlakeppnin verður með svipuðu sniði og áður. 32 lið verða í átta riðlum þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli. Hvert lið leikur sex leiki, heima og að heiman gegn hinum þremur liðunum í riðlinum. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í umspilið, alls 16 lið en keppni lýkur hjá þeim 16 liðum sem enda í þriðja og fjórða sæti í riðlakeppninni. Við 16 liðin úr Evrópudeildinni bætast síðan 12 lið úr Meistaradeild Evrópu. Þar er um að ræða liðin sem enda í 3. og 4. sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Alls verða því 28 lið í umspilinu og þau mætast í 14 einvígjum sem dregið verður í. 14 lið komast áfram úr umspilinu og þar bætast síðan við tvö lið úr Meistaradeild Evrópu. Það eru tvö lið sem enda í 5. sæti í seinni riðlakeppni Meistaradeildarinnar þar sem leikið verður í tveimur sex liða riðlum. Þá verða 16 lið eftir og hefjast þá hefðbundin útsláttarkeppni. Einnig verður dregið í 16-liða úrslitin og að þeim loknum fara átta lið áfram í átta liða úrslitin. Þau verða sömuleiðis dregin saman. Eftir átta liða úrslitin taka við undanúrslit og úrslitaleikur á EHF Finals í Hamborg. Ein helsta breytingin á nýja fyrirkomulaginu er að öll fjögur liðin sem komast á EHF Finals munu hafa leikið nákvæmlega jafn marga leiki á tímabilinu. Lið sem fara alla leið leika 14 leiki: Sex í riðlakeppninni og síðan tvo leiki í hverri umferð, í umspili, 16-liða úrslitum, átta liða úrslitum og á lokamótinu. Undanfarin ár gat leikjafjöldi liða verið mismunandi um allt að fjóra leiki eftir því hvort þau þurftu að fara í gegnum undankeppni og hvort þau þurftu að spila í umspili eða komust beint í 16-liða úrslit. Nýja fyrirkomulagið á því að tryggja jafnari leið fyrir öll lið sem komast alla leið á lokamótið.32 lið í riðlakeppninni
14 lið komast áfram úr umspilinu
Öll liðin á lokahelginni með jafn marga leiki
Leikdagar Evrópudeildarinnar 2026/27

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.