Flensburg fær leikmann frá Göppingen
Kadir Caliskan /AFP

SG Flensburg-Handewitt hefur tryggt sér Victor Kløve til framtíðar. Hinn 24 ára danski leikmaður gengur til liðs við félagið sumarið 2027 og skrifar undir fjögurra ára samning.

Flensburg er þegar farið að styrkja liðið fyrir framtíðina og hefur nú gengið frá samningi við Victor Kløve. Hann kemur því til liðsins á sama tíma og landsliðsmaðurinn Viggo Kristjansson og portúgölsku Costa bræðurnir.

Kløve kemur til félagsins sumarið 2027 og verður samningsbundinn Flensburg til ársins 2031. Kløve kveðst afar ánægður með að fá tækifæri til að spila fyrir eitt stærsta félag Þýskalands.

„Ég er mjög stoltur yfir því að Flensburg hafi valið mig. Flensburg er félag með stolta hefð, mikinn metnað og ótrúlegan stuðning. Ég veit hvernig stemningin getur verið í höllinni og því verður það mjög sérstakt að fá að upplifa hana sem leikmaður heimaliðsins.“

Flensburg hefur um árabil verið einn vinsælasti áfangastaður danskra handknattleiksmanna og Kløve verður því ekki fyrsti Daninn sem gengur í raðir Flensburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top