Handboltasíðan RT Handball á Instagram hefur birt sitt mat á tíu stærstu félagaskiptunum sem taka gildi fyrir tímabilið 2027/28. Á listanum er meðal annars, landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson. Stærstu félagaskiptin að mati RTHandball eru félagaskipti portúgölsku bræðranna Francisco (Kiko) Costa og Martim Costa, sem yfirgefa Sporting og ganga í raðir þýska stórliðsins Flensburg-Handewitt sumarið 2027. Félagaskiptin voru gerð opinber á dögunum. Viggó Kristjánsson, sem yfirgefur HC Erlangen og gengur til liðs við Flensburg-Handewitt, er í 8. sæti listans, en Viktor Gísli Hallgrímsson, sem flytur sig frá Industria Kielce til Flensburgar, er í 9. sæti. Athygli vekur að Flensburg-Handewitt kemur hvað mest við sögu á listanum, bæði með stórar komur og brottfarir, en félagið fær til sín Costa-bræðurna og Viggó Kristjánsson á sama tíma og Simon Pytlick og Niclas Kirkeløkke yfirgefa félagið Tíu stærstu félagaskiptin samkvæmt RTH Handball eru:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.