Hefur trú á að Rúnar geti forðað Wetzlar frá falli
JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Niklas Weller, fyrrverandi fyrirliði HSV Hamburg, telur að TVB Stuttgart geti haldið áfram að koma andstæðingum sínum á óvart í þýsku Bundesligunni á komandi tímabili.

Weller var einn þriggja fyrrverandi atvinnumanna sem handball-world fékk til að spá fyrir um komandi tímabil. Þegar hann var spurður hvaða lið gæti komið mest á óvart nefndi hann Stuttgart.

„Ég held að Stuttgart geti haldið áfram að koma á óvart,“ sagði Weller.

Hann telur að Stuttgart verði afar óþægilegur andstæðingur fyrir mörg af bestu liðum deildarinnar og bendir sérstaklega á leikskipulag liðsins.

„Það verður mjög óþægilegt að spila gegn þeim. Við sáum á síðasta ári að þeir urðu mörgum liðum, þar á meðal toppliðum, hættulegir,“ sagði Weller.

Stuttgart hefur á undanförnum árum byggt upp lið sem getur gert sterkustu liðum deildarinnar lífið leitt. Weller telur að það sem geri liðið sérstaklega erfitt viðureignar sé svokallað Kaufmann-kerfi, sem kennt er við þjálfarann Misha Kaufmann.

„Það er einfaldlega mjög erfitt að spila gegn Kaufmann-kerfinu. Nú hafa þeir svo bætt við leikmönnum sem passa inn í það,“ sagði Weller. Markmið liðsins verður þó ekki aðeins að vinna einstaka leiki gegn stærstu liðunum heldur að sýna meiri stöðugleika yfir heilt tímabil. Það er einmitt þar sem næsta skref fyrir Stuttgart gæti legið.

Patrick Groetzki var hins vegar ekki jafn viss um að óvænt lið myndi blanda sér í toppbaráttuna. Hann nefndi þess í stað HSG Wetzlar sem lið sem gæti komið á óvart með því að halda sér frá fallbaráttu. HSG Wetzlar er þjálfað af Rúnari Sigtryggssyni sem tók við liðinu á síðustu leiktíð og bjargaði liðinu frá falli á ótrúlegan hátt.

„Ég held að HSG Wetzlar muni ekki hafa neitt með fall að gera. Þeir hafa styrkt sig vel, verða stöðugri og vinna sérstaklega marga leiki á heimavelli,“ sagði Groetzki.

Paul Drux nefndi svo THW Kiel þegar hann var spurður um lið sem hann væri sérstaklega spenntur að fylgjast með. Hann telur Kiel hafa styrkt sig vel og bendir sérstaklega á ráðningu Börge Lund sem nýs þjálfara.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top