Norðmenn óttast að vera að dragast aftur úr í handboltanum
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP

Norðmenn þurfa að líta í eigin barm eftir að U-18 ára landslið karla missti af sæti á heimsmeistaramótinu á næsta ári. Claus Dalgaard-Hansen, hæfileikastjóri yngri landsliða norska handknattleikssambandsins, segir að bilið upp í fremstu handboltaþjóðir heims hafi aukist og varar jafnframt við því að fleiri þjóðir séu nú að ná Norðmönnum eða fara fram úr þeim.

Dalgaard-Hansen skrifar um stöðuna í pistli á heimasíðu norska handknattleikssambandsins eftir að U-18 ára landsliðinu tókst ekki að tryggja sér sæti á HM næsta árs. Norska landsliðið endaði í 18.sæti Evrópumótsins sem fram fór í Serbíu en liðið tapaði lokaleik sínum á mótinu gegn Sviss 40-34.

Norska liðið lék átta leiki á mótinu, vann Slóvakíu, Svartfjallaland og Finnland tvívegis en tapaði gegn Póllandi, Danmörku, Austurríki og Sviss. Liðið tapaði meðal annars með 13 mörkum gegn Austurríki 28-15, með 17 mörkum gegn Dönum 42-25 og með sex mörkum gegn Póllandi 32-26.

Noregur vann Slóvakíu með einu marki 32-31, Svartfjalland með einu marki 25-24 og Finnland tvívegis, í fyrra skiptið með tveimur mörkum 29-27.

Hann segir þjálfarateymi liðsins hafa fengið heimild til að nýta öll þau taktísku úrræði sem mögulegt var til þess að tryggja HM-sætið. Norðmenn hafi áður lagt meiri áherslu á einstaklingshæfni og þróun leikmanna og því meðal annars valið að nota ekki varnar-/sóknarskiptingar eða sjö gegn sex leik svo snemma í þroskaferli þeirra.

Leikir U-18 ára landsliðsins síðasta eina og hálfa árið hafi hins vegar sýnt að nauðsynlegt væri að nýta fleiri taktísk úrræði og skerpa áherslurnar meira en æskilegt væri til þess að komast á HM.

Það dugði þó ekki til.

„Samt var það ekki nóg. Þrátt fyrir að leikmenn, þjálfarar og stjórnendur hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð, verðum við að viðurkenna að við verðum ekki með á HM næsta sumar,“ skrifar Dalgaard-Hansen.

Fleiri þjóðir að ná Norðmönnum

Dalgaard-Hansen segir Norðmenn nú þurfa að líta í eigin barm og skoða hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir að fleiri þjóðir fari fram úr þeim.

„Við verðum að viðurkenna að bilið í fremstu þjóðirnar hefur aukist. Á sama tíma eru fleiri lönd, í raun hópur landa sem áður voru á eftir okkur, sem hafa náð okkur eða farið fram úr okkur,“ skrifar hann.

Hann segir að fjöldi iðkenda og æfingatími skýri ekki stöðuna.

„Æfa leikmennirnir í hinum löndunum meira en við? Nei, í nokkrum tilfellum æfa þeir í raun minna. Eru fleiri leikmenn í hinum löndunum en hjá okkur? Nei, það á aðeins við um Þýskaland og Frakkland. Við höfum jafn marga leikmenn og Danmörk,“ skrifar Dalgaard-Hansen.

Að mati hans þurfi Norðmenn því að skoða þróunarkerfi yngri leikmanna betur.

„Við verðum því að skoða þróunarkerfið okkar nánar. Við verðum að skoða daglegan veruleika leikmannanna, þjálfunina og leikjaframboðið sem þeir fá. Saman verðum við að auka gæðin,“ skrifar Dalgaard-Hansen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top