Fyrirliðateymi Evrópumeistarana klárt
Instagram

Timothey N'Guessan verður fyrirliði Evrópumeistara Barcelona á komandi tímabili. Félagið hefur tilkynnt fyrirliðahóp liðsins fyrir tímabilið 2026/27.

Janus Daði Smárason gekk í raðir félagsins í sumar frá Pick Szeged og Viktor Gísli Hallgrímsson er á leið inn í sitt annað tímabil með félaginu.

N'Guessan verður fyrsti fyrirliði Barcelona en hann hefur verið hjá félaginu frá árinu 2016, að undanskildu einu tímabili hjá Telekom Veszprém. Hann er því einn af reyndustu leikmönnum liðsins.

Slóvenski hornamaðurinn Blaz Janc verður annar fyrirliði, en portúgalski línumaðurinn Luís Frade þriðji. Ludovic Fàbregas verður svo fjórði fyrirliði Barcelona en saman mynda þeir fyrirliðateymi liðsins fyrir komandi tímabil.

Fàbregas sneri aftur til Barcelona sumarið 2025 eftir tveggja ára dvöl hjá Veszprém og er jafnframt fyrirliði franska landsliðsins.

Barcelona varð Evrópumeistari í vor eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og hefur því miklar væntingar fyrir komandi tímabil. Liðið átti nánast fullkomið tímabil á síðustu leiktíð og tapaði aðeins einum leik á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top