Kaufmann framlengir við Stuttgart
Tom Weller / AFP

Misha Kaufmann hefur framlengt samning sinn við TVB Stuttgart og verður samningsbundinn þýska félaginu til sumarsins 2030. Upphaflegur samningur svissneska þjálfarans átti að renna út sumarið 2028 en hefur nú verið framlengdur um tvö ár.

Kaufmann tók við Stuttgart fyrir síðasta tímabil eftir að hafa stýrt ThSV Eisenach upp í þýsku úrvalsdeildina. Á sínu fyrsta tímabili með Stuttgart hafnaði liðið í 12. sæti deildarinnar.

Framlengingin er skýr yfirlýsing um að Stuttgart ætlar að byggja til framtíðar undir stjórn Kaufmann. Félagið stefnir að því að komast í topp tíu á komandi tímabili og vinna sig síðan jafnt og þétt ofar í þýsku deildinni.

„Við höfum sameiginlega sýn og viljum byggja eitthvað upp hér til lengri tíma,“ sagði Kaufmann eftir að nýi samningurinn var undirritaður.

Kaufmann er 42 ára og hefur verið í þjálfarateymi Stuttgart frá sumrinu 2025. Hann hafði áður náð góðum árangri með Eisenach og stýrði liðinu upp í Bundesliguna árið 2023. Nú hefur Stuttgart hins vegar tryggt sér krafta hans næstu fjögur árin og stefnir á að færa sig upp stigann í þýska handboltanum undir hans stjórn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top