Patrick Groetzki, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og einn af máttarstólpum Rhein-Neckar Löwen til margra ára, hefur miklar væntingar til MT Melsungen í Meistaradeild Evrópu á komandi tímabili. Groetzki var einn þriggja fyrrverandi atvinnumanna sem handball-world fékk til að spá fyrir um komandi tímabil í þýsku Bundesligunni. Hinir voru Paul Drux, fyrrverandi leikmaður Füchse Berlin, og Niklas Weller, fyrrverandi fyrirliði HSV Hamburg. Þegar Groetzki var spurður um sitt stærsta „hot take“ fyrir tímabilið valdi hann Melsungen. „Mitt Hot Take er að MT Melsungen muni komast mjög langt í Meistaradeildinni,“ sagði Groetzki. Reynir Þór Stefánsson er eini Íslendingurinn í herbúðum MT Melsungen á næstu leiktíð en Arnar Freyr Arnarsson yfirgaf félagið í sumar og gekk í raðir Flensburg. Melsungen hefur undanfarin ár tekið stór skref í átt að því að festa sig í sessi meðal sterkustu liða Þýskalands. Félagið hefur fjárfest mikið í leikmannahópnum og hefur markmiðið verið að berjast á fleiri vígstöðvum en aðeins í þýsku deildinni. Spá Groetzki er því áhugaverð í ljósi þess að Melsungen er að taka þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins en liðið vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð eftir sigur á Kiel í úrslitaleik keppninnar. Melsungen verður því eitt þeirra liða sem fylgst verður sérstaklega með í Meistaradeildinni á komandi tímabili. Groetzki þekkir þýska handboltann afar vel. Hann lék allan atvinnumannaferil sinn með Rhein-Neckar Löwen og hefur nú tekið við nýju hlutverki hjá félaginu. Hann lagði skóna á hilluna í sumar eftir langan og farsælan feril.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.