

Danska úrvalsdeildarfélagið Nordsjælland Håndbold hefur rekið Tobias Aagaard, aðalþjálfara liðsins, með tafarlausum hætti. Félagið greinir frá þessu í dag. Ástæðan er ekki íþróttalegs eðlis heldur snýr að samskiptum Aagaard við unga leikmenn liðsins. Félagið segir samskiptamáta hans hafa verið „óviðunandi“ og ósamrýmanlegan þeim ábyrgðarkröfum sem gerðar eru til þjálfara hjá félaginu. „Félaginu var á síðustu dögum gert kunnugt um samskiptamáta gagnvart ungum leikmönnum sem Nordsjælland Håndbold telur óviðunandi og ósamrýmanlegan þeirri ábyrgð og þeim gildum sem fylgja starfi þjálfara hjá félaginu,“ segir í tilkynningu félagsins. Kim Scheuer Nielsen, framkvæmdastjóri Nordsjælland, segir þjálfara félagsins eiga að vera bæði fyrirmyndir og traustir aðilar fyrir leikmenn. „Hjá Nordsjælland Håndbold eiga þjálfarar okkar að vera bæði fyrirmyndir og traustir aðilar. Það á ekki síst við í starfi með ungum leikmönnum. Að okkar mati hefur þessi ábyrgð ekki verið uppfyllt með þeim hætti sem við getum sætt okkur við og því lýkur samstarfinu,“ segir Nielsen. Aagaard hafði aðeins gegnt starfi aðalþjálfara í skamman tíma. Hann var færður úr starfi yfirmanns afreks- og unglingastarfs í aðalþjálfarastarfið í júlí eftir að Laurids Søgaard yfirgaf félagið og tók við norska liðinu Elverum. Nordsjælland hefur ekki gefið nánari upplýsingar um hvað fólst í þeim samskiptum sem félagið telur óviðunandi og hyggst ekki tjá sig frekar um málið. Nicolaj Jensen, sem hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins, tekur tímabundið við starfi aðalþjálfara á meðan félagið leitar að varanlegri lausn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.