Þýsku meistarnir í SC Magdeburg hafa gengið frá samningi við franska landsliðsmanninn Thibaud Briet. Hann kemur til félagsins frá HBC Nantes sumarið 2028 og hefur skrifað undir þriggja ára samning við þýska félagið. Briet er 26 ára gamall sem mun fylla stöðuna í vinstri skyttu stöðunni hjá Magdeburg. Hann hefur verið samningsbundinn Nantes frá árinu 2019 og hefur á þeim tíma fest sig í sessi sem einn af sterkari leikmönnum franska liðsins. Hann hóf atvinnumannaferilinn hjá uppeldisfélagi sínu, Rouen HB, þar sem hann lék í þrjú ár með aðalliðinu áður en leiðin lá til Nantes. Þar þróaðist Briet í landsliðsmann og lék sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland árið 2022 gegn Þýskalandi. Briet hefur unnið franska bikarinn tvisvar með Nantes. Þá hefur hann tvisvar tekið þátt í Final4 helginni í Meistaradeildar Evrópu með Nantes. „Thibaud er ungur og kraftmikill leikmaður sem hefur þegar mikla reynslu á hæsta stigi. Með Nantes spilar hann í Meistaradeildinni og með franska landsliðinu hefur hann unnið til verðlauna. Þróun hans er langt frá því að vera lokið,“ sagði Bennet Wiegert, þjálfari og framkvæmdastjóri íþróttamála hjá Magdeburg. Wiegert segir Briet einnig falla vel að félaginu utan vallar. „Hann er frábær og skemmtilegur strákur. Ég er sannfærður um að hann geti gefið SC Magdeburg nýja krafta með íþróttalegri getu sinni, baráttuanda og ástríðu og að hann passi mjög vel inn í okkar leikkerfi. Ég hlakka til þess að vinna með honum.“ Briet verður því áfram hjá Nantes næstu tvö tímabil áður en hann heldur til Þýskalands og gengur til liðs við Magdeburg fyrir tímabilið 2028/29.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.