Guðjón Valur kallar eftir þolinmæði með ungu leikmennina
Michael Hundt / AFP

VfL Gummersbach hefur gert töluverðar breytingar á leikmannahópnum fyrir komandi tímabil í þýsku Bundesligunni. Guðjón Valur Sigurðsson er ánægður með nýju leikmennina en segir mikilvægt að sýna ungu leikmönnunum þolinmæði.

Gummersbach er komið á lokametrana í undirbúningi sínum fyrir tímabilið og Guðjón Valur er ánægður með þróun liðsins síðustu vikurnar. Enn sé þó ýmislegt sem þurfi að slípa, meðal annars tímasetningar bæði í sóknar- og varnarleiknum.

„Við erum með frábæran hóp og gott lið, en sannleikurinn kemur ekki í ljós fyrr en í lok ágúst,“ sagði Guðjón Valur.

Fjórir nýir leikmenn hafa bæst við hóp Gummersbach og Guðjón segist ánægður með þá alla. Stærsta nafnið er spænska stórstjarnan Alex Dujshebaev.

„Hann er heimsklassaleikmaður sem hefur þegar sýnt hvað hann getur með spænska landsliðinu og í mismunandi löndum.“

Dujshebaev þarf nú að aðlagast þýsku Bundesligunni, sem Guðjón Valur lýsir sem sterkustu deild heims, en Íslendingurinn hefur fulla trú á að Spánverjinn ráði vel við það verkefni.

Markvörðurinn Ignacio Biosca kemur einnig með mikla alþjóðlega reynslu inn í hópinn. Guðjón bendir auk þess á að Biosca tali „frábæra þýsku“.

Tveir yngri leikmenn eru einnig komnir til félagsins, hinn 20 ára Nikola Roganovic og hinn 19 ára Garðar Ingi Sindrason.

Guðjón Valur segir báða gríðarlega efnilega og langt komna miðað við aldur en varar við því að of miklar væntingar séu gerðar til þeirra strax.

„Þeir eru mjög hæfileikaríkir og mjög langt komnir miðað við aldur.“

Guðjón segir þó ekkert sjálfgefið þegar svo ungir leikmenn stíga inn í eina sterkustu deild heims.

„Það er ekki sjálfgefið að þeir nái að festa sig í sessi í Bundesligunni, 19 og 20 ára gamlir.“

Þeir þurfi því að fá nauðsynlegan tíma til að þróast. Á sama tíma sé nóg af reynslu og gæðum í leikmannahópi Gummersbach til að styðja við bakið á þeim.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top