

Björgvin Páll Gústavsson var maður dagsins í leik Vals og H71 við Tjarnir í lokaleik liðanna á Wenzel Cup sem fram fór um síðustu helgi í Færeyjum. Björgvin Páll fór hreinlega á kostum í marki Vals og varði hvert skotið á fætur öðru frá leikmönnum H71. Björgvin Páll var í miklu stuði frá fyrstu mínútu og varði fyrstu sex skotin sem hann fékk á sig. Með því kom hann í veg fyrir að H71 kæmist almennilega af stað. Alls varði hann 12 skot í fyrri hálfleik. Í frétt á Roysni í Færeyjum er sagt frá því að Björgvin Páll, hafi lengi leikið með sítt hár og hafi um árabil verið einn þekktasti markvörður íslenska landsliðsins. Þar er sagt að hann sé líklega þekktastur fyrir frammistöðu sína á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 þegar íslenska landsliðið vann silfurverðlaun og skrifaði þar með sögulegan kafla í íslenskri íþróttasögu. Hallur Danielsen hefur sagt í heimildarmynd Kringvarpsins að árangur íslenska landsliðsins í Peking hafi meðal annars orðið innblástur fyrir Færeyinga til að leggja aukna áherslu á uppbyggingu handboltans í landinu. Björgvin Páll segir framfarirnar sem orðið hafa í færeyskum handbolta á undanförnum árum hafa verið áhrifamiklar. „Það er líka eitthvað sérstakt hvernig þið standið saman um þetta hér í Færeyjum,“ sagði Björgvin Páll. Hann er ánægður með þátttöku Vals í Wenzel Nordic Cup og segir leikinn gegn H71 hafa verið besta leik liðsins í keppninni. „Þeir eru næst okkur í styrkleika og H71 myndi klárlega geta barist um toppsæti í íslensku deildinni. Það eru margir mjög góðir leikmenn í liðinu og þeir spiluðu ekki einu sinni sinn besta leik í dag.“ Auk Vals og H71 léku GOG og Kiel á mótinu. Valsmenn fóru að lokum með 31-27 sigur af hólmi. Bjarni í Selvindi var markahæstur Valsmanna með átta mörk og átti stóran þátt í sigrinum. Bjarni, sem er frá Skálum, var ánægður með frammistöðu Vals í Færeyjum og tók undir með Björgvini Páli um styrkleika H71. „H71 er mjög gott lið,“ sagði Bjarni. Björgvin Páll virðist hins vegar telja að Bjarni geri sér ekki alveg grein fyrir hversu góður leikmaður hann sjálfur er en þeir voru báðir í viðtali eftir leikinn á sunnudaginn við Roysni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.