Tímabær spá fyrir Olís deild karla
Raggi Óla

Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deild karla tímabilið 2026/2027 og hefur fengið einn af sérfræðingum sínum, Einar Inga Hrafnsson til að sjóða saman í löngu tímabæra spá fyrir komandi tímabil.

Þetta verður þriðja spá Handkastsins næsta tímabil en Handkastið birti fyrstu ótímabæra spá sína um miðjan maí. Í byrjun júlí birti Einar Ingi síðan sína fyrstu ótímabæru spá en nú er komið að tímabæri spá frá Mosfellingnum.

Gefum Einari Inga orðið:

Áfram höldum við, minna en mánuður í mót og liðin með allt í botni í undirbúning.

Það er áhugavert að sjá hvernig liðin stilla upp sínum undirbúningi, sumir þjálfara vilja spila mikið á meðan aðrir kjósa að spila minna. Enn aðrir kjósa að fara í æfingaferðir erlendis til að þétta hópinn og spila þá við misgóð erlend lið. Á meðan flestir þjálfarar halda sig heima og láta nægja að máta sig við tilvonandi mótherja í Olís-deildinni.

Það eru ákveðnar breytingar í nýju spánni. Við sjáum meiðsli lykilpósta hafa áhrif á stöðu nokkurra liða, sem og að góð úrslit lyfta óvæntum Þórsurum inn í úrslitakeppni. Framarar virðast þungir og ekki eins spennandi og maður hefði áætlað. Leiðtogaleysi að plaga liðið og Mosfellingar taka því framúr þeim.

Haukarnir, sem geyma spaða ásinn ennþá í spilastokknum halda deildarmeistaratitlinum á meðan Eyjamenn detta út úr úrslitakeppni í nýrri spá.

Það verður spennandi að sjá hvort þjóðhátíðar uppgjörið komi fyrir mót og muni breyta leiknum fyrir Eyjuna á næstu vikum.

Ótímabær spá fyrir Olís-deild karla

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Olís-deild karla

Tímabær spá Einars Inga:

  1. Haukar
  2. Valur
  3. FH
  4. KA
  5. Afturelding
  6. Fram
  7. HK
  8. Þór
  9. ÍBV
  10. Víkingur
  11. Stjarnan
  12. Selfoss

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top