Eva Hrund Harðardóttir sem var ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking í sumar er hætt störfum hjá félaginu. Þetta kom fram í tilkynningu frá Víking í gærkvöldi. Eva Hrund var ekki á svæðinu þegar liðið tapaði í æfingaleik gegn Grill66-deildarliði FH á þriðjudaginn samkvæmt heimildum Handkastsins. Eva Hrund hættir með kvennalið Víkings. Handkastið ákvað að búa til fimm manna lista af þjálfurum sem gætu verið mögulegir kandídatar að taka við liðinu. Það skal þó tekið fram að þetta er einungis til gamans gert og eingöngu laufléttar bollaleggingar. Fimm þjálfarar sem gætu tekið við Víking: Ragnar Hermannsson Margreyndur þjálfari bæði karla og kvennamegin og hefur verið í þjálfarateymi karlaliðs Víkings undanfarin tvö ár. Kom inn í þjálfarateymi kvennaliðs Víkings í sumar og sá um styrktaræfingar. Ragnar liggur ekki á skoðunum Guðmundur Helgi Pálsson Var orðaður við kvennalið Aftureldingar og ÍR eftir að hafa ekki þjálfað undanfarin ár. Guðmundur þekkir vel til í Virkinu (gamla Safamýri) en hann þjálfaði karlalið Fram á sínum tíma þegar liðið lék í Safamýri. Guðmundur Helgi hefur mikla reynslu sem þjálfari og gæti komið inn með reynslu og ró inn í erfiðar aðstæður í Virkinu. Daníel Ísak Gústafsson Ungur og efnilegur þjálfari sem kom til Víkings í fyrra og er í þjálfarateymi karlaliðs Víkings ásamt Aðalsteini Eyjólfssyni. Er auk þess að þjálfa yngri flokka hjá Víkingi. Það yrðu hæg heimatökin að ráða Daníel Ísak inn í þjálfarateymi Víkings og hugsa til framtíðar. Andrés Gunnlaugsson Þekkir vel til félagsins en hann stýrði kvennaliði Víkings á sínum tíma. Tók síðan við kvennaliði Aftureldingar en fékk ekki áframhaldandi samning í Mosfellsbænum eftir síðustu leiktíð og er því án félags. Gerði fína hluti með kvennalið Víkings áður en Sebastian Alexandersson var ráðinn þjálfari liðsins. Benedikt Emil Aðalsteinsson Ungur og efnilegur þjálfari sem er að þjálfa yngri flokka hjá Víkingi. Hefur sett fókusinn á þjálfarastarfið og sett leikmannaferilinn til hliðar en hann fór til Færeyja á síðasta tímabili en dokaði þar stutt við. Mikill handboltaheili og hefur getið sér gott orð sem yngri flokka þjálfari hjá Víkingi. Gæti orðið spennandi kostur fyrir félagið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.