
Nicolej Krickau hefur tjáð sig um brottrekstur sinn frá SG Flensburg-Handewitt. Daninn segir samstarfið við stjórnendur félagsins, og þá sérstaklega Holger Glandorf, ekki hafa gengið eins og vonast var eftir. Krickau var látinn taka pokann sinn hjá Flensburg í desember 2025 eftir um eitt og hálft tímabil við stjórnvölinn hjá norður-þýska stórliðinu. Í hlaðvarpinu Kontrapad ræddi hann nú um endalok samstarfsins og segir að hugmyndir hans og Holger Glandorf, framkvæmdastjóra Flensburg, um hvernig ætti að stýra liðinu hafi einfaldlega ekki farið saman. „Leiðin sem ég vildi fara til að stýra liðinu passaði alls ekki við það hvernig Holger Glandorf vildi stýra liðinu,“ sagði Krickau. Að sögn Krickau varð munurinn á nálgun þeirra sérstaklega áberandi þegar illa gekk. Eftir tapleiki hafi ekki verið sameiginlegur skilningur á því hvernig ætti að bregðast við stöðunni og takast á við mótlætið. Það hafi á endanum orðið hluti af því að samstarfið gekk ekki upp. Þrátt fyrir erfið endalok segist Krickau þó alls ekki sjá eftir því að hafa tekið við Flensburg. Hann lýsir því að fá tækifæri til að þjálfa félagið sem stórum draumi og stendur enn við að það hafi verið rétt ákvörðun hjá honum að stökkva á tækifærið. Krickau er við stjórnvölinn hjá Fusche Berlin í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.