Sjáðu ótrúlegar lokasekúndur – sigurmark Kiel dæmt af
FRANK MOLTER /AFP

Ótrúleg dramatík átti sér stað í lok stórleiks Kiel og Flensburg í þýsku Bundesligunni í gær þegar sigurmark Kiel var dæmt af eftir nokkurra mínútna myndbandsskoðun.

Liðin skildu jöfn, 31-31, í 117. slag erkifjendanna en allt ætlaði um koll að keyra í Kiel þegar Julian Köster virtist tryggja heimamönnum sigurinn einni sekúndu fyrir leikslok.

Domen Makuc fann Köster með frábærri sendingu og Köster kom boltanum í netið. Leikmenn Kiel fögnuðu gríðarlega ásamt troðfullri höllinni enda virtist sigurinn vera í höfn.

Dómararnir Julian Köppl og Denis Regner ákváðu hins vegar að fara í myndbandsskoðun.

Eftir nokkurra mínútna bið kom niðurstaðan. Dómararnir töldu Makuc hafa tekið of mörg skref áður en hann sendi boltann á Köster og markið var því dæmt af. Lokatölur urðu 31-31 og fögnuður Kiel breyttist á augabragði í fögnuð leikmanna Flensburg.

Kiel hafði lengst af verið með yfirhöndina í leiknum. Heimamenn leiddu 18-14 í hálfleik og voru fimm mörkum yfir, 30-25, þegar tíu mínútur voru eftir. Flensburg neitaði hins vegar að gefast upp. Gestirnir unnu sig inn í leikinn á lokamínútunum og Marko Grgic jafnaði metin í 31-31 skömmu fyrir leikslok áður en dramatíkin í síðustu sókn Kiel tók við.

Makuc var markahæstur Kiel með níu mörk en Simon Pytlick og Aymeric Minne skoruðu sjö mörk hvor fyrir Flensburg.

Bæði lið höfðu unnið fyrstu fimm leiki sína í Bundesligunni fyrir leikinn og eru áfram taplaus.

Hér fyrir neðan má sjá ótrúlegar lokasekúndur leiksins þar sem sigurmark Kiel var dæmt af eftir myndbandsskoðun, auk þess sem hægt er að sjá helstu tilþrif úr leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top