Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvallsdeildinni í kvöld og voru nokkrir Íslendingar í sviðsljósinu. Rúnar Sigtryggson og lærisveinar hans í Wetzlar fengu RN Löwen í heimsón og byrjuðu gestirnir betur og voru þremur mörkum yfir í hálfleik 13-16 en Wetzlar náðu að koma til baka í síðari hálfleik og leikurinn endaði með jafntefli 30-30. Haukur Þrastarson leikur með RN Löwen en hann skoraði sjö mörk í kvöld í fimmtán skotum. Í hinum leik kvöldsins unnu lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer góðan endurkomusigur gegn HBW Balingen-Weilstetten. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir HBW Ballingen en Bergishler komu til baka og unnu góðan 28-29 sigur. Markahæsti leikmaður vallarins var Fynn Hangstein en hann skoraði 10 mörk í liði Bergisher Úrslit kvöldsins:
HSG Wetzlar 30 - 30 Rhein-Neckar Löwen
HBW Balingen- Weilstetten 28 - 29 Bergisher

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.