Jóhann Birgir sneri aftur í tapleik gegn Aftureldingu
Egill Bjarni Friðjónsson

Jóhann Birgir Ingvarsson lék sinn fyrsta leik með HK á tímabilinu þegar liðið tapaði gegn Aftureldingu, 30-26, í 6. umferð Olís-deildar karla í Myntkaup-höllinni í Mosfellsbæ.

Jóhann Birgir kom sér ekki á blað í leiknum en hann átti þrjár skot tilraunir í leiknum sem allar geiguðu. Jóhann varð fyrir því óhappi að nefbrotna í leik með HK á undirbúningstímabilinu.

HK-ingar byrjuðu leikinn af krafti og héldu vel í við heimamenn í fyrri hálfleik. Staðan var jöfn, 16-16, þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Afturelding byrjaði síðari hálfleikinn betur og komst í 19-16 áður en HK svaraði með þremur mörkum í röð og jafnaði metin. Mosfellingar skoruðu hins vegar næstu fjögur mörk og náðu þar með forskoti sem HK tókst ekki að vinna upp.

Afturelding fagnaði að lokum fjögurra marka sigri og fór með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar með níu stig. HK situr hins vegar í níunda sæti með fjögur stig.

Gunnar Dan Hlynsson var markahæstur HK með sjö mörk úr sjö skotum og Örn Alexandersson skoraði sex mörk. Hákon Daði Styrmisson og Oscar Lykke voru markahæstir Aftureldingar með sjö mörk hvor. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top