Jón Þórarinn á að veita þeim meira aðhald
J.L.Long

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla, valdi þrjá markverði í 20 manna hóp sinn fyrir leikina gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028 í nóvember. Hópurinn var kynntur á föstudaginn.

Auk Viktors Gísla Hallgrímssonar og Björgvins Páls Gústavssonar er Jón Þórarinn Þorsteinsson, markvörður FH, í hópnum. Snorri var spurður út í valið og stöðuna á milli stanganna.

Snorri Steinn velur 20 leikmenn fyrir fyrstu leiki undankeppninnar

„Viktor Gísli er klárlega okkar markmaður númer eitt og það er ekkert leyndarmál. Það er líka þekkt að Björgvin Páll er ekki að yngjast. Þó svo að ég sé ekkert endilega að leita af einhverjum í hans stað þá kemur að því að við þurfum að finna eftirmann hans á einhverjum tímapunkti. Jón Þórarinn á að veita þeim meira aðhald,“ sagði Snorri Steinn.

Ísland tekur á móti Úkraínu miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 19:30 og mætir Eistlandi á útivelli sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Hópurinn kemur saman mánudaginn 2. nóvember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top