Nýjar upplýsingar hafa komið fram um samning þýska landsliðsfyrirliðans Johannes Golla við MT Melsungen. Samkvæmt þýska miðlinum Bild eru aðeins sex félög sem geta nýtt sér sérstakt samningsákvæði til að kaupa línumanninn undan samningi, þar á meðal hans gamla félag Flensburg. Golla gekk til liðs við Melsungen frá Flensburg í sumar og skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2031. Aðeins nokkrum mánuðum síðar hefur hann hins vegar óskað eftir því að yfirgefa félagið og snúa aftur til Flensburg. Samkvæmt Bild heimilar ákvæðið sex tilteknum félögum að kaupa Golla undan samningi gegn fyrirfram ákveðinni greiðslu. Félögin sex eru Flensburg, Kiel, Rhein-Neckar Löwen, Barcelona, Kielce og Paris Saint-Germain. Upphæðin er sögð nema 500 þúsund evrum auk virðisaukaskatts, jafnvirði rúmlega 70 milljóna íslenskra króna án skatta. Þá er ákvæði í samningnum sem gerir ráð fyrir að greiðslan lækki í 375 þúsund evrur ef Melsungen tekst ekki að tryggja sér sæti í Evrópukeppni. Það sem vekur mesta athygli er að samkvæmt upplýsingum Bild tekur ákvæðið ekki gildi fyrr en sumarið 2028. Það gæti skýrt hvers vegna Melsungen hafnaði nýlegu tilboði Flensburg upp á 700 þúsund evrur, en félagið er sagt vilja fá að minnsta kosti eina milljón evra fyrir leikmanninn. Melsungen hafnar risatilboði í Golla Golla hefur nú dregið til baka uppsögn sína hjá Melsungen en vill engu að síður yfirgefa félagið. Félagaskiptamálið hefur vakið mikla athygli í þýskum handbolta undanfarna daga og enn er óljóst hvort félögin nái samkomulagi um félagaskipti áður en ákvæðið tekur gildi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.