Landsliðsmaður óánægður hjá Álaborg
SOEREN STACHE / AFP

Norski landsliðsmaðurinn Alexandre Blonz er ósáttur við þann litla spilatíma sem hann hefur fengið hjá danska stórliðinu Álaborg á tímabilinu. Blonz viðurkennir að rætt hafi verið um möguleikann á að hann yfirgefi félagið til að fá stærra hlutverk annars staðar.

Hinn 26 ára gamli Blonz hefur átt erfitt með að vinna sér fast sæti í liði Álaborgar á tímabilinu en samkeppnin í vinstra horninu er mikil. Danski landsliðsmaðurinn Magnus Landin hefur verið fyrsti kostur í stöðuna og hinn ungi Magnus Norlyk hefur einnig fengið talsverðan spilatíma.

Blonz hefur því þurft að sætta sig við takmarkaðan spilatíma og í nokkrum leikjum hefur hann ekki verið í leikmannahópi Álaborgar.

Í samtali við danska TV 2 Sport viðurkennir Norðmaðurinn að staðan sé ekki eins og hann hefði kosið.

„Auðvitað er verið að ræða hvort það séu aðrir möguleikar í boði þar sem ég gæti spilað meiri handbolta,“ sagði Blonz. Hann tekur þó fram að markmiðið sé ekki endilega að finna félag þar sem hann sé sjálfkrafa fyrsti kostur í sína stöðu.

Blonz vill áfram leika með sterku liði sem berst um titla en leggur jafnframt áherslu á að fá reglulegan spilatíma. Norðmaðurinn segist ekki hafa farið fram á það við forráðamenn Álaborgar að þeir finni nýtt félag fyrir sig.

Blonz var á dögunum valinn í norska landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni Evrópumótsins en hann hefur leikið yfir hundrað landsleiki fyrir Noreg.

Norðmaðurinn er á sínu öðru tímabili hjá Álaborg en hann gekk til liðs við félagið sumarið 2025 frá GOG. Þar áður lék hann með Pick Szeged í Ungverjalandi og Elverum í heimalandinu.

Álaborg mætir Celje í 5.umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld klukkan 18:45 en Álaborg er komið áfram úr riðlinum á meðan Celje er án stiga á botni riðilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top