Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur sent leikmönnum sínum skýr skilaboð fyrir leikinn gegn Slóvakíu í undankeppni Evrópumótsins á morgun. Leikurinn verður síðasta tækifæri leikmannanna til að sanna sig áður en Alfreð velur landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi. Þýska landsliðið mætir til leiks í Prešov í Slóvakíu eftir öruggan 42-32 sigur gegn Belgíu í fyrsta leik undankeppninnar. Þrátt fyrir tíu marka sigur var Alfreð Gíslason ekki nægilega ánægður með varnarleik sinna manna en Þjóðverjar fengu á sig 32 mörk gegn Belgum. Íslenski þjálfarinn vill sjá mun betri varnarleik gegn Slóvakíu og leggur áherslu á að leikmenn mæti af fullum krafti frá fyrstu mínútu. Í samtali við eurohandball.com gerði Alfreð ljóst að leikurinn gegn Slóvakíu hefði mikla þýðingu fyrir leikmenn sem berjast um sæti í HM-hópnum. „Við viljum ekki bara vinna í Slóvakíu heldur líka spila virkilega góðan leik. Þetta er síðasta tækifæri leikmannanna til að sýna sig áður en við veljum hópinn fyrir heimsmeistaramótið á heimavelli,“ sagði Alfreð. Hann bendir á að samkeppnin um sæti í þýska landsliðinu sé mikil og því þurfi leikmenn að nýta tækifærið vel. „Samkeppnin í liðinu er gríðarleg og þess vegna vonast ég eftir sterkri frammistöðu. Við verðum að gefa hundrað prósent og sérstaklega í varnarleiknum þurfum við að vera tilbúnir strax frá upphafi.“ Leikurinn gegn Slóvakíu fer fram á sunnudaginn og verður síðasta tækifæri leikmannanna til að heilla Alfreð áður en hann velur HM-hópinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.