ÍBV og Stjarnan mættust í áttundu umferð Olís deild kvenna í leik sem fór fram í Vestmannaeyjum fyrr í dag. Heimakonur skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins og var staðan í hálfleik 13-7 fyrir ÍBV. Stjarnan reyndi í síðari hálfleik og náði liðið að minnka muninn í þrjú mörk undir lokin en ÍBV gaf aftur í undir lok leiks og landaði liðið sex marka sigri, 27-21. ÍBV er í öðru sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir toppliði Hauka. Stjarnan er áx botni deildarinnar með tvö stig. Sandra Erlingsdóttir var langmarkahæst á vellinum í dag og skoraði sextán mörk en Sandra hefur farið á kostum í Eyja liðinu á þessu tímabili. Amelía Dís Einarsdóttir kom á eftir Söndru með fjögur mörk. Inga María Roysdóttir var markahæst í liði Stjörnunnar en hún skoraði níu mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.