David Móré 22 ára vinstri hornamaður þýska úrvalsdeildarfélagsins Eisenach, hefur vakið mikla athygli í þýsku Bundesligunni á tímabilinu. Frammistaða hans hefur ekki farið fram hjá Alfreð Gíslasyni, landsliðsþjálfara Þýskalands, sem hefur hrósað unga leikmanninum fyrir framfarir hans undanfarna mánuði. Móré lék sinn fyrsta landsleik fyrir Þýskaland í 42–32 sigri gegn Belgíu í undankeppni EM 2028 á fimmtudagskvöldið og skoraði fjögur mörk í frumrauninni. Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer. Hornamaðurinn gekk til liðs við Eisenach frá Rhein-Neckar Löwen og hefur heldur betur blómstrað hjá nýja félaginu. Hann hefur nýtt yfir 91% skota sinna í þýsku Bundesligunni á tímabilinu og er með bestu skotnýtingu allra vinstri hornamanna deildarinnar. Alfreð hefur verið ánægður með þróun leikmannsins og telur að félagaskiptin til Eisenach hafi reynst honum afar vel. Móré hefur sjálfur ekki farið leynt með að hann dreymir um að komast í lokahóp Þjóðverja fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer á heimavelli í janúar. Samkeppnin um vinstri hornastöðuna er hins vegar hörð og ljóst að Móré þarf að halda áfram að sýna sínar bestu hliðar ætli hann sér að tryggja sæti í hópnum. Alfreð hefur verið að prófa nýja leikmenn í landsliðsglugganum og verður fróðlegt að sjá hvort Móré fái fleiri tækifæri þegar Þjóðverjar mæta Slóvakíu í undankeppni EM í dag. Heimsmeistaramótið hefst í Þýskalandi 13. janúar næstkomandi og því fer hver að verða síðastur fyrir leikmenn að sýna sig og sanna fyrir Alfreð áður en hann velur lokahópinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.