Taplaus lið mætast tvívegis á Ásvöllum
Sævar Jónasson

Haukar fá svartfellska liðið RK Levalea 2010 Nikšić í heimsókn í þriðju umferð Evrópubikars kvenna um helgina. Báðir leikirnir fara fram í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum, sá fyrri í kvöld og sá síðari á morgun.

Flautað verður til leiks klukkan 18:00 báða dagana.

Bæði lið sitja á toppi deildarinnar í sínu heimalandi með fullt hús stiga. Haukar hafa unnið alla átta leiki sína í Olís-deildinni á meðan Levalea hefur unnið fimm leiki af fimm í Svartfjallalandi.

Haukar eru skráðar heimalið í fyrri leiknum og Levalea í þeim síðari. Félagar í Haukum í horni fá frítt inn í boði Umbúðagerðarinnar á báða leikina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top