Selfoss og KA/Þór mættust á Selfossi í dag í áttundu umferð í Olís deild kvenna. Selfoss lagði grunninn af góðum sigri í fyrri hálfleik en heimakonur voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 15-10. Selfoss hélt út leikinn og landaði að lokum fjögurra marka sigri 26-22. Selfoss siglir um miðja deiold en liðið er í sjötta sæti deildarinnar með sex stig. Akureyringarnir eru í tveimur stigum frá fallsæti en liðið situr í áttunda sæti deildarinnar með fjögur stig. Hulda Hrönn Bragadóttir var atkvæðamesdt í liði Selossar með sjö mörk. Perla Ruth Albertsdóttir skoraði sex mörk. Sóley Lára Kristjánsdóttir var atkvæðamesdt í liði KA/Þór en hún skoraði sex mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.