Íslenska karlalandsliðið hefur unnið alla leiki sína í undankeppnum EM og HM frá því að Snorri Steinn Guðjónsson tók við liðinu. Gísli Þorgeir Kristjánsson segir kjarnann í hópnum hafa styrkst á undanförnum árum eftir því sem leikmenn hafa lært betur inn á hver annan. Ísland hóf undankeppni EM 2028 með 22 marka sigri á Úkraínu í fullri Laugardalshöll á miðvikudag. Í samtali við Handkastið var Gísli spurður hvað hefði helst breyst frá því að hann kom fyrst inn í landsliðshópinn, þegar liðinu gekk verr að vinna útileiki í undankeppnum. „Við komum einhvern veginn allir saman inn í þennan landsliðshóp, svolítið allt í einu,“ sagði Gísli. „Við höfum þroskast inn í þetta verkefni saman og þá hefur þessi kjarni orðið sterkari. Við erum búnir að læra betur inn á hver annan og hvað virkar og hvað virkar ekki.“ Gísli þekkir það vel úr leikjum með Magdeburg að mæta til leiks sem sigurstranglegri aðilinn. Hann segir að slíkir leikir geti orðið snúnir ef menn mæta óklárir til leiks. „Ef maður er ekki klár þá getur þetta orðið frekar vandræðalegt stundum, eins og hefur gerst. Ég er oft að spila svona leiki með Magdeburg þar sem maður er sterkari aðilinn og maður þarf samt að tækla verkefnið hundrað prósent.“ Gísli sagði líka að full Laugardalshöll hefði gefið liðinu aukinn kraft gegn Úkraínu. Það skipti hann máli hvernig liðið spilaði fyrir fólkið sem mætti. „Það er bara geðveikt að spila í Laugardalshöllinni,“ sagði Gísli. Hann vildi að liðið mætti til leiks af sömu alvöru og gegn sterkari mótherjum. Ísland mætir Eistlandi í Eistlandi í dag klukkan 16:00. Gísli vill sjá sömu vinnubrögð þar og gegn Úkraínu og segir leikinn líka mikilvægan í undirbúningnum fyrir HM í janúar. „Við þurfum engu að síður að nálgast þetta verkefni alveg eins, með sama prófessionalisma og við gerðum á móti Úkraínu. Við erum ekkert með mikinn tíma. Síðan er bara komið HM í janúar. Við þurfum líka að nýta þetta fyrir okkur til að stilla saman strengi og koma okkur á næsta level.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.