Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður Magdeburg, sér ekki ástæðu til að breyta fyrirkomulagi félagaskipta í alþjóðlegum handbolta. Mikil umræða hefur skapast um félagaskipti sem eru ákveðin langt fram í tímann, meðal annars vegna mála Simon Pytlick og Johannes Golla. Ómar Ingi segir að það trufli sig ekki að leikmenn semji við ný félög einu til tveimur árum áður en þeir skipta um lið. „Maður er orðinn svolítið vanur þessu, að leikmenn séu farnir einu og hálfu ári áður, stundum ári og stundum tveimur árum áður en þetta er klárt. Þetta truflar mig ekkert,“ sagði Ómar Ingi í samtali við Handkastið. Rætt hefur verið um að taka upp strangari félagaskiptaglugga í handboltanum, líkt og þekkist í knattspyrnu. Ómar Ingi telur slíkt ekki til bóta, sérstaklega fyrir leikmenn með fjölskyldur. „Fyrir mér er þetta allt í lagi eins og þetta er. Mér finnst líka þægilegt að vita framtíð mína eða hafa einhverja hugmynd. Ef það væri bara hálfs árs gluggi til að gera þetta, þá myndi mér finnast það óþægilegt, sérstaklega með fjölskyldu og svona.“ Hann bendir jafnframt á að félög geti hagnast á því að skipuleggja leikmannamál sín með góðum fyrirvara. „Þetta getur líka verið gott fyrir félögin að vera með plan. Þú getur fengið góða leikmenn jafnvel ódýrara ef þú ert duglegur að skipuleggja fram í tímann.“ Ómar Ingi telur auk þess að erfitt yrði að framfylgja strangari reglum og að handboltinn standi frammi fyrir brýnni verkefnum. „Ég held að það væri mjög erfitt að hafa eftirlit með þessu. Það kostar líka peninga og ég held að það sé fullt af öðrum hlutum sem handboltinn þarf að bæta áður en þeir fara í þetta,“ sagði Ómar Ingi Magnússon við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.