Undrast á uppganginum í Færeyjum
Cornelius Poppe / NTB / AFP

Mirko Radović fyrrverandi fyrirliði Svartfjallalands hefur lýst yfir mikilli aðdáun á þeim framförum sem færeyska karla landsliðið hefur tekið undanfarin ár.

Radović ræddi um uppgang Færeyinga í viðtali við Handknattleikssamband Evrópu (EHF) fyrir leik Svartfjallalands og Færeyja í undankeppni Evrópumótsins 2028, sem fram fer á morgun.

Færeyingar hafa vakið mikla athygli í evrópskum handbolta undanfarin ár og fest sig í sessi sem ein af þeim þjóðum sem hafa tekið hvað mestum framförum á skömmum tíma.

Radović rifjaði meðal annars upp hversu ólíkt færeyska landsliðið væri því liði sem hann mætti sjálfur á sínum tíma með Svartfjallalandi. Hann segir þróunina hafa verið ótrúlega og að Færeyingar hafi á skömmum tíma breyst úr því að vera lítil handboltaþjóð í lið sem geti veitt sterkustu landsliðum Evrópu harða keppni.

Færeyingar unnu eftirminnilegan þrettán marka sigur gegn Svartfellingum 37–24, á Evrópumótinu í janúar síðastliðnum. Það var jafnframt fyrsti sigur Færeyinga á stórmóti og vakti úrslitin mikla athygli víða um Evrópu.

Færeyingar hófu undankeppni EM 2028 með sjö marka sigri gegn Kósóvó, 37–30, á heimavelli í vikunni og mæta nú Svartfellingum á útivelli á sunnudaginn.

Leikurinn verður því ákveðinn uppgjörsleikur fyrir Svartfellinga, sem vilja hefna ófaranna frá Evrópumótinu í janúar. Radović, sem lék lengi með landsliði Svartfjallalands, telur ljóst að engin þjóð geti lengur vanmetið Færeyinga.

Radović hrósaði sérstaklega þremur leikmönnum færeyska landsliðsins, þeim Óla Mittún, Eliasi Ellefsen á Skipagøtu og Hákun West av Teigum. Hann sagði Mittún þegar vera meðal bestu miðjumanna heims og lýsti honum sem einstaklega erfiðum leikmanni að verjast vegna hraða, styrks og hæfileika í maður á mann stöðum.

Radović sagði jafnframt að Færeyingar væru afar sterkir í sjö á móti sex sóknarleik og að hraði þeirra og leikskilningur gerðu andstæðingum erfitt fyrir.

Svartfellingar töpuðu fyrsta leik sínum í undankeppninni gegn Ungverjum, 32–21, og þurfa því nauðsynlega á sigri að halda á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top