Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke gæti verið á förum frá SG Flensburg-Handewitt aðeins rúmu ári eftir að hann gekk til liðs við félagið. Samkvæmt þýska miðlinum SPORT BILD á Witzke nú í viðræðum um félagaskipti til Hamburg, þar sem hann myndi leika út yfirstandandi tímabil. Witzke, sem er 27 ára gamall leikstjórnandi, gekk til liðs við Flensburg frá Leipzig sumarið 2025 en hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla. Hann gekkst undir aðgerð á öxl og hefur verið frá keppni um langt skeið. Þjóðverjinn er nú orðinn leikfær á nýjan leik en virðist eiga takmarkaða möguleika á að vinna sér fast sæti í liði Flensburg undir stjórn Ales Pajovic. Hamburg er hins vegar í leit að liðsstyrk eftir að Moritz Sauter varð fyrir krossbandameiðslum og er ekki væntanlegur aftur á völlinn fyrr en á næsta tímabili. Samkvæmt SPORT BILD kemur til greina að Hamburg fái Witzke á láni út tímabilið. Slík niðurstaða gæti hentað báðum félögum, enda fengi Witzke tækifæri til að spila reglulega og koma sér aftur í leikform eftir langa fjarveru. Witzke er samningsbundinn Flensburg til sumarsins 2027 en þegar hafa komið fram fregnir um að hann gæti yfirgefið félagið endanlega þegar samningurinn rennur út. Bæði MT Melsungen og HC Erlangen eru sögð hafa mikinn áhuga á þýska landsliðsmanninum sem vann til silfurverðlauna með Þýskalandi á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Ef samningar nást á milli Flensburg og Hamburg í yfirstandandi landsleikjahléi gæti Witzke leikið sinn fyrsta leik fyrir Hamburg laugardaginn 14. nóvember þegar liðið mætir HC Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni. Hjá Flensburg leikur íslenski landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson en hjá Hamburg er Einar Þorsteinn Ólafsson á mála.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.