Stymmi spáir í spilin (
Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 17.umferð fari í Olís deild karla. ÍR – HK (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: HK Er þetta síðasti séns ÍR til þess að halda sér í deildinni? Ætlar HK sér í úrslitakeppnina? Svakalegur leikur fyrir bæði lið sem gætu skorið úr um tímabilið hjá þeim. ÍR þurfa nauðsynlega á tveim stigum að halda en það þurfa HK líka. Ég hallast að sigri HK í þessum fyrsta leika 17.umferðar. Afturelding – Valur (Sunnudagur 15:30) / Sigurvegari: Afturelding Bæði lið töpuðu illa í síðustu umferð og vilja hefna fyrir það strax. Valsmenn voru ólíkir sjálfum sér gegn Haukum meðan Afturelding tapaði gegn Fram. Það eru meiðsli að herja á útilínu Vals og breiddin fyrir utan ekki mikil eftir að Magnús Óli bættist á meiðslalistann í síðasta leik. Einar Baldvin mun ekki eiga tvö lélega leiki í röð og vera í ham og tryggja Aftureldingu sigur á Val á sunnudaginn. Haukar – ÍBV (Sunnudagur 16:00) / Sigurvegari: Haukar Liðin unnu bæði sína leiki örugglega í síðustu umferð. Eyjamenn eru þó að díla við meiðsli, þá aðallega í vörninni og eru fáliðaðir þar meðan Haukar eru nánast með alla sína menn klára og fóru illa með Val fyrr í vikunni. Deildarmeistaratitilinn er þeirra ef þeir halda haus út tímabilið og þetta verður annað skrefið þeirra í átt að þeim titli. Haukar vinna og Coolbet býður stuðulinn 1.73 á Hauka sigur. Þór – FH (Sunnudagur 16:00) / Sigurvegari: FH Þór vann góðan sigur á Stjörunni í Garðabænum á fimmtudaginn og komu sér aðeins lengra frá botsæti deildinnar. FH náði loks að drepa þessa HK grýlu í deildinni og eru í bullandi baráttu um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. FH fer norður og kippir Þór niður á jörðina. Stjarnan – Selfoss (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Selfoss Bæði lið áttu hræðilega leiki síðustu umferð og hugsa sér gott til glóðarinnar að geta strax kvittað fyrir þær frammistöður. Stjarnan er að glíma við mikli meiðsli og hópurinn er þunnur og sjálfstraustið lítið. Selfoss getur sett Stjörnuna í alvöru fallbaráttu ef þeir vinna í Garðabænum á sunnudaginn sem ég tel þá gera. KA – Fram (Sunnudagur 17.00) / Sigurvegari: Fram Þegar þessi lið áttust við í 8 liða úrslitum Powerade bikarsins þá unnu KA. Fram hefur síðan þá endurheimt töluvert af mönnum úr meiðslum og unnu góðan sigur á Aftureldingum í vikunni. Ég held að Fram kvitti fyrir vonbrigðin í bikarnum og vinni óvæntan sigur á Akureyri á sunnudagskvödið. 16.umferð (5 réttir)
15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.