Úrslitakeppnin í sjónmáli: risaleikir í 13. umferð – Esbjerg fær Györ í heimsókn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

_z919578 (Metz

Aðeins tvær umferðir eru eftir af riðlakeppni Meistaradeildar kvenna og nú fer hver leikur að vega þyngra. Í A-riðli er Györ þegar búið að tryggja sér beint sæti í átta liða úrslitum, en Esbjerg vill nýta heimavöllinn til að rjúfa taphrinuna gegn ungversku meistarunum. Metz getur svo tryggt sér beint sæti með sigri á Dortmund.

Í B-riðli er staðan ennþá þéttari: toppbaráttan og baráttan um umspilssæti getur breyst fljótt með úrslitum helgarinnar – og þar er sérstaklega áhugavert að sjá FTC–CSM, danska slaginn Ikast–Odense og beinan úrslitaleik Podravka–Krim.

Leikir helgarinnar

A-riðill

Esbjerg - Györ | Laugardagur 14.febrúar kl 17:00
Esbjerg er á flugi: fjórir sigrar í röð og ósigrað í sjö leikjum. En Györ er með bestu vörnin í allri keppninni og er það lið sem kann að vinna jafnvel þegar það er ekki að spila sinn besta leik. Í fyrri leiknum í haust vann Györ 31:30, þar sem Kristina Jörgensen setti sigurmarkið 10 sekúndum fyrir leikslok og Housheer var með 12 mörk.
Það sem gerir leikinn sérstaklega spennandi er að Esbjerg er með Henny Reistad í miklum ham. Hún er komin í 85 mörk og deilir toppsætinu á markalistanum með Vyakhirevu. Ef Esbjerg ætlar loksins að brjóta blað í einvíginu við Györ þarf liðið að ná að halda tempóinu í leiknum fá „stóra kafla“ í vörn/markvörslu – annars refsar Györ miskunnarlaust.

Dortmund - Metz | Sunnudagur 15.febrúar kl 13:00
Metz getur tryggt sér beint sæti í átta liða úrslitum með sigri. Franska liðið hefur sýnt að það getur unnið bæði stóra leiki og „ljótu“ leiki – eins og 29:26 sigurinn á Bistrita síðast.
Dortmund er í þeirri stöðu að eitt stig dugar til að tryggja umspilssæti. Liðið fékk skell í Debrecen en á samt nóg inni – og þegar Grijseels fær að stjórna tempóinu getur Dortmund verið mjög óþægilegt. Lykillinn fyrir Metz verður að brjóta leik Dortmund upp og komast í hraðann sinn. Fyrir Dortmund snýst þetta um að hanga inni í leiknum lengi og gera þetta að taugaátökum á lokakaflanum.

Buducnost - Storhamar | Sunnudagur 15.febrúar kl 15:00
Þetta er leikur neðstu liðanna í A-riðli – en fyrir Storhamar er þetta samt enn leikur uppá líf eða dauða. Norksa liðið er á átta leikja taphrinu, en hafa tapað nokkrum leikjum naumt og eiga innbyrðisforskot á Dortmund. Til að eiga raunhæfa von þarf Storhamar að vinna hér og vona að Dortmund tapi.
Buducnost er búið að missa möguleikann á umspili, en hefur samt sýnt að liðið getur bitið frá sér. Storhamar þarf að vinna markvörslu- og varnarleikinn, líkt og í fyrri leiknum þegar Raasok lokaði markinu með 19 vörslum – annars getur þetta orðið enn eitt kvöldið þar sem „næstum því“ dugar ekki.

Gloria Bistrita - DVSC | Sunnudagur 15.febrúar kl 15:00
Bæði lið eru þegar komin í umspil, en hér er samt fullt undir: Bistrita vill halda fjórða sætinu og DVSC vill endað eins hátt og hægt er fyrir betri stöðu í framhaldinu. Bistrita hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum á árinu 2026 og þarf að stöðva blæðinguna.
Toublanc og So Delgado eru báðar í toppbaráttu markaskoraranna og það getur ráðið miklu hvor þeirra nær að setja tóninn snemma. Bistrita á heimavöll sem getur orðið óþægilegur – en DVSC kemur með sjálfstraust eftir 29:23 sigur á Dortmund.

B-riðill

Brest - Sola | Laugardagur 14.febrúar kl 15:00
Brest vill halda fast um toppsætið og á pappírunum ætti þetta að vera skyldusigur gegn Sola sem er úr leik. Fyrri leikurinn var þó jafn og spennandi þar sem að Sola sýndi að liðið getur gert stórliðum lífið leitt.
Vyakhireva er á eldi og með 85 mörk (jafnt Reistad). Brest mun líklega keyra á breiddinni og hraðanum, en Sola vill stjórna hraðanum í leiknum og reyna að hanga inni fram á lokakaflann – það er eini glugginn þeirra.

FTC - CSM Búkaresti | Laugardagur 14.febrúar kl 17:00
Þetta er einn stærsti leikur helgarinnar í B-riðli. CSM er á svakalegu gengi og vann Brest 40:34 síðast – en FTC hefur verið að sigra sína leiki með þéttri vörn en þær eru með bestu vörn riðilsins.
Omoregie er lykilmaður í sókn CSM og FTC þarf að reyna að brjóta hana niður með agressívri vörn. Á móti kemur að FTC á fullt af vopnum, sérstaklega þegar Klujber og Vogel fá að hlaupa á varnarmenn í hraða. Þetta gæti orðið leikur þar sem markvarslan og tapaðir boltar koma til með að ráða miklu.

Podravka - Krim | Laugardagur 14.febrúar kl 17:00
Hreinn úrslitaleikur um síðasta umspilssætið. Liðin eru jöfn að stigum (5 stig) og nú er einfalt:

  • Podravka kemst áfram með sigri (hvernig sem hann kemur).
  • Krim þarf að vinna með minnst 6 mörkum til að tryggja sig áfram óháð öðrum úrslitum.

Podravka er á níu leikja taphrinu og Krim hefur tapað síðustu þremur – þannig að bæði lið mæta með pressu og lítið sjálfstraust. Pletikosic er allt í öllu í sókn Podravka, en Krim treystir mikið á Horacek. Þetta gæti orðið þungur, líkamlegur leikur þar sem liðið sem heldur haus lengur vinnur.

Ikast - Odense | Sunnudagur 15.febrúar kl 15:00
Danska einvígið sem getur hrist upp í toppbaráttunni. Odense er með 17 stig og Ikast 16 – bæði lið eru þegar örugg í umspil, en topp-2 er enn innan seilingar.
Odense hefur bestu sókn keppninnar og fer oft yfir 33 mörk að meðaltali. Ikast er hins vegar með þéttara jafnvægi og kemur inn á þriggja leikja sigurgöngu. Ef Scaglione og Skogrand fá sitt flæði geta þær sett Odense í vandræði – en Odense er líka með gífurlega breidd og getur refsað hratt ef Ikast missir taktinn í varnarleiknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top