Allt undir í lokaumferðinni í Meistaradeild kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

nasz3890 (Elizabeth Omoregie

Lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna fer fram um helgina og spennan gæti varla verið meiri. Á meðan staðan er nánast ráðin í A-riðli, er spennan þeim um meiri í B-riðli þar sem fjögur lið berjast um tvö bein sæti í átta liða úrslitum.

A Riðill: Barátta um toppsætið og síðasta sætið í umspili

Györ og Metz hafa þegar tryggt sér bein sæti í átta liða úrslitum. Lokaumferðin sker hins vegar úr um hvort liðið endar í efsta sæti riðilsins.

Þrjú lið eru þegar örugg í umspil:

  • Team Esbjerg – 3. sæti
  • Gloria Bistrita – 4. sæti
  • DVSC Debrecen – 5. sæti

Spennan snýst því um sjötta og síðasta umspilssætið:

  • Dortmund fer áfram ef liðið vinnur eða gerir jafntefli gegn Györ – eða tapar og Storhamar tekst ekki að vinna.
  • Storhamar kemst áfram ef liðið vinnur Bistrita og Dortmund tapar.

Buducnost er þegar úr leik.

Staðan í A-riðli

B Riðill: Fjögurra liða slagur um tvö bein sæti

Í B-riðli er allt opið. Brest, Odense, CSM og FTC geta öll endað í topp tveimur og tryggt sér beint sæti í átta liða úrslitum.

Staðan fyrir lokaumferð:

Brest fer beint áfram ef:

  • liðið vinnur eða gerir jafntefli við Krim
  • eða tapar en annað hvort Odense eða CSM misstígur sig

Odense fer áfram ef:

  • liðið vinnur FTC
  • eða gerir jafntefli og CSM vinnur ekki

CSM fer áfram ef:

  • liðið vinnur Ikast og Odense vinnur ekki

FTC fer áfram ef:

  • liðið vinnur Odense og CSM vinnur ekki

Umspilssæti þegar ráðin

  • Ikast – tryggt umspil
  • Podravka – tryggt umspil
  • Krim og Sola – úr leik

Smáatriðin geta ráðið öllu

Ef lið enda jöfn að stigum ræður innbyrðis árangur úrslitum. Í sumum mögulegum jafnteflistilfellum stendur CSM sérstaklega vel að vígi, á meðan Odense hefur lakari markatölu gegn helstu keppinautum.

Staðan í B-riðli


Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top