Díana Dögg Magnúsdóttir (Beate Oma Dahle / AFP)
Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst íslensku leikmannanna hjá Blomberg Lippe í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 18 marka sigur á Göppingen 40-22 í 16.umferð þýsku deildarinnar. Díana gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Blomberg-Lippe vann fyrri leik liðanna fyrr á leiktíðinni með tíu mörkum 33-23 og unnu því viðureignirnar tvær með 28 marka mun. Blomberg-Lippe er í 2. sæti deildarinnar með 28 stig, stigi á eftir Dortmund sem er á toppi deildarinnar. Göppingen er hinsvegar í 8.sæti deildarinnar með 8 stig, tveimur stigum frá botnsætinu en ellefu lið leika í þýsku úrvalsdeildinni. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 4 mörk og gaf 2 stoðsendingar og Andrea Jacobsen skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Andrea gengur í raðir ÍBV í Olís-deild kvenna í sumar og leikur með liðinu á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.