Tveir leikmenn sagðir vera á leið í HK
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur HK samið við tvo leikmenn fyrir næstu leiktíð. Um er að ræða þá Dag Sverri Kristjánsson sem er að koma heim eftir þriggja ára veru í Svíþjóð.

Fyrstu tvö árin lék hann með Karlskrona í sænsku úrvalsdeildinni en fyrir þessa leiktíð gekk hann í raðir Vinslövs í sænsku næstu efstu deild.

Dagur sagði á dögunum í viðtali við Handkastið að planið væri að flytja heim. Dagur sem er örvhent skytta er alinn upp hjá ÍR en gekk í raðir Karlskrona frá ÍR fyrir þremur árum síðan. Er Degi ætlað að fylla skarð Ágústs Guðmundssonar sem er sagður vera á leið til FH í sumar frá HK.

Fleiri leikmenn hafa verið orðaðir frá HK meðal annars Haukur Ingi Hauksson, Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson landsliðsmaður Bandaríkjanna. Tveir síðast nefndu eru sagðir vera á leið í Hauka en Haukur er sagður vera á leið til Fram.

HK hafa samkvæmt heimildum Handkastsins hinsvegar fyllt skarð Sigurðar Jefferson með Tómasi Braga Starrasyni línumanni Gróttu í Grill66-deildinni. Tómas Bragi Starrason er línumaður fæddur árið 2002 og lék með Fjölni í Olís-deildinni á síðustu leiktíð gekk í raðir Gróttu fyrir leiktíðina og hefur leikið með liðinu í Grill66-deildinni.

Grótta er á leið í umspil um laust sæti í Olís-deildinni en að minnsta kosti þrír leikmenn liðsins hafa nú þegar samið við önnur lið í Olís-deildinni og er þetta því annað árið í röð sem félagið missir töluvert af leikmönnum frá sér áður en keppnistímabilinu lýkur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top