ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap í tvíframlengdum leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Úrslitakeppni Olís deildar karla fór af stað með miklum hvelli þegar ÍBV fékk KA í heimsókn í fyrsta leik í einvíginu milli þessara liða í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilin.

Jafnræði var með liðunum til að byrja með en KA menn gerðu vel í lok fyrri hálfleiks og fóru með tveggja marka forskot inn til búningsherbegja. Síðari hálfleikurinn bauð upp á allt og gríðarlegur hiti var í síðari hálfleik þar sem tvö rauð spjöld fóru meðal annars á loft þar sem Erlingur Richardsson þjálfari ÍBV var meðal annars sendur upp í stúku.

KA menn byrjuðu betur en ÍBV gerði ótrúlega vel og kom til baka eftir að hafa lent þremur mörkum undir. Þegar allt stefndi í sigur ÍBV þá gerðu heimamenn tvö mistök og KA tókst að jafna leikinn og framlengja þurfti leikinn. Ágúst Elí Björgvinsson tryggði KA í framlengingu með ótrúlegri markvörslu frá Ívari Bessa Viðarssyni eftir sirkus tilraun Eyjamanna örfáum sekúndum fyrir leikslok.

Það dugði hinsvegar ekki til að framlengja leikinn aðeins einu sinni því úrslitin réðust í annarri framlengingu leiksins en það voru gestirnir í KA sem unnu að lokum eins marks sigur 33-34 og er því komið yfir í einvíginu en liðin mætast næsta á Akureyri þar sem ÍBV mætir með bakið upp við vegg.

Ágúst Elí var frábær í marki KA í fyrri hálfleik með 12 varin skot, hann fann sig hinsvegar ekki í seinni hálfleiknum en kom síðan sterkur til leiks í framlengingunum og varði fimm skot í seinni framlengingunni.

Einar Rafn Eiðsson var markahæstur í liði KA með átta mörk og Bjarni Ófeigur Valdimarsson kom næstur með sjö mörk. Morten Boe Linder sneri til baka eftir meiðsli og skoraði fjögur mörk. Ágúst Elí Björgvinsson varði 21 skot í marki KA.

Petar Jokanovic varði 20 skot í marki ÍBV en Dagur Arnarsson var markahæstur í liði ÍBV með tíu mörk. Elís Þór Aðalsteinsson skoraði sjö mörk og Sveinn Rivera fimm.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top