HK tók á móti Val í öðrum leik liðanna í 8 liða úrslitum Olís deildar karla í Kórnum í kvöld. Fyrri leik liðanna lauk með sigri Vals eftir framlengdan leik. Fyrri hálfleikurinn var keimlíkur fyrri leik liðanna þar sem HK hafði frumkvæðið framan af en Valsmenn voru aldrei langt undan. Valur náði þó frumkvæðinu undir lok fyrri hálfleik og leiddi með einu marki í hálfleik, 13-14. HK byrjaði fyrstu mínútur síðari hálfleiks betur og leiddu framan af en Valsmenn tóku svo öll völd á leiknum og náðu mest þriggja marka forystu um miðbik síðari hálfleiks. HK reyndi hvað þeir gátu til að gera áhlaup en náðu aldrei að minnka muninn nema niður í eitt mark. Á lokakafla leiksins leystist leikurinn upp í hálfgerða vitleysu þegar HK reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin en stuttum sóknum þeirra var refsað með marki í bakið frá Valsmönnum sem unnu að lokum fjögurra marka sigur, 28-32. Sigurður Jefferson Guarino var markahæstur hjá HK í kvöld með 7 mörk en hjá Val var Gunnar Róbertsson markahæstur með 10 mörk. HK eru því komnir í sumarfrí en Valsmenn eru komnir í undanúrslit og mæta þar KA mönnum sem unnu ÍBV fyrr í dag og einvígið 2-0 líkt og Valsmenn. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.