
Sænski landsliðsmaðurinn, Jim Gottfridsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ungverska stórliðið Pick Szeged en samkvæmt heimildum Rthandball hefur félagið og Svíinn komist að samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið. Jim Gottfridsson var ekki í leikmannahópi Pick Szeged í jafnteflinu gegn pólska liðinu Kielce í gærkvöldi en þar tryggði Pick Szeged sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Gottfridsson gekk í raðir Pick Szeged síðasta sumar og var á sínu fyrsta tímabili með félaginu. Janus Daði Smárason er leikmaður Pick Szeged en gengur í raðir Barcelona næsta sumar. Hann lék áður með Flensburg í tólf ár og eru strax kominn orðrómur um að hann vilji snúa aftur til Flensburg í sumar. Handksatið greindi frá því fyrr í dag að línumaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson væri að ganga í raðir Flensburg fyrir næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.