
Norska félagið Bergsøy sem vann sér sæti í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð hefur tilkynnt að félagið hafi samið við Gintaras Savukynas um að taka við liðinu frá og með sumrinu. Í tilkynningunni hjá félaginu segir að Gintaras snúi þar með aftur til félagsins eftir tíu ár. Gintaras var aðalþjálfari hjá Bergsøy frá 2013 til 2016, þar sem hann gegndi einnig hlutverki framkvæmdastjóra og yfirþjálfara yngri flokka. ,,Hann var einn af drifkröftunum á bak við það verkefni sem lagði grunninn að þróun félagsins og ferðalagi sínu í átt að úrvalsdeildinni," segir í tilkynningunni frá félaginu. Gintaras Savukynas hefur komið víða við á sínum ferli bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann hefur þjálfað í Noregi, Finnlandi, Úkraínu, Katar, Íslandi og Hvíta-Rússlandi og hefur leitt lið í bæði Meistaradeild Evrópu, Evrópudeild Evrópu, SEHA-deildinni. Hann hefur unnið deildar- og bikarmeistaratitla í Finnlandi, Úkraínu og Litháen og kom Al-Arabi (Katar) í úrslit Asísku félagsdeildarinnar árið 2023. Hann hefur einnig yfir tíu ára reynslu sem landsliðsþjálfari litháíska karlalandsliðsins, stöðu sem hann gegnir enn. Gintaras þjálfaði ÍBV á árunum 2006-2008 og þá lék hann með Aftureldingu á árunum 1998-2001 og vann þrefalt með liðinu árið 1999. Þá lék hann með Gróttu tímabilið 2003-2004. ,,Við erum mjög ánægð að fá Gintaras aftur til Bergsøy. Hann þekkir félagið, menningu okkar og umhverfi og kemur jafnframt með mikla alþjóðlega reynslu og faglegt vægi," segir formaðurinn Øyvind Bostad.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.