Nikolaj Jacobsen tjáir sig um ákvörðun Lasse Andersson
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Dana, segir mikilvægt að fólk horfi ekki eingöngu á handboltann þegar rætt er um ákvörðun danska landsliðsmannsins Lasse Andersson að færa sig niður um deild.

Lasse Andersson mun á næsta tímabili leika í dönsku 1. deildinni með HØJ Elite eftir að félagið féll úr efstu deild. Félagaskiptin hafa vakið athygli í handboltaheiminum þar sem Andersson hefur lengi verið fastamaður í danska landsliðinu og leikið á hæsta stigi í Evrópu með Fusche Berlin.

Í viðtali við TV2 Sport segir Jacobsen að mikilvægt sé að skilja að leikmenn taki slíkar ákvarðanir út frá fleiri þáttum en eingöngu handboltanum.

„Það er mikilvægt að horfa á manneskjuna í heild,“ segir Jacobsen og bendir á að fjölskyldulíf, líðan og jafnvægi í daglegu lífi skipti einnig miklu máli þegar leikmenn ákveða framtíð sína.

Jacobsen segir jafnframt að það þurfi ekki endilega að vera neikvætt fyrir leikmann að spila í neðri deild ef aðstæðurnar utan vallar séu betri. Að hans mati geti það jafnvel hjálpað leikmönnum að finna meiri stöðugleika og njóta handboltans betur.

Jacobsen telur félagaskiptin ekki breyta stöðu Lasse Andersson hjá danska landsliðinu. Hann segir að hæfileikar leikmannsins og gæði breytist ekki þó hann muni spila í 1. deildinni á næsta tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top