Snúin staða fyrir Guðjón Val og lærisveina hans
Michael Hundt / AFP

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach berjast þessa dagana fyrir sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Í þeirri baráttu mætir þýska félagið harðri samkeppni frá Füchse Berlin og Melsungen.

Óvenjuleg staða hefur hins vegar skapast í þýsku deildinni eins og Handkastið greindi frá í gær. Füchse Berlin og Melsungen eigast við á morgun og gæti tap reynst Melsungen hagstætt þegar kemur að möguleikum félagsins á að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeildinni.

MELSUNGEN HAGNAST Á TAPI.

Ef Melsungen tapar færist Füchse Berlin nær 2. sæti deildarinnar. Endi Berlínar-liðið þar og vinni jafnframt Meistaradeild Evrópu, myndi Melsungen fá sæti í keppninni vegna sigurs síns í Evrópudeildinni.

Guðjón Valur hefur gagnrýnt þessa stöðu og telur óeðlilegt að lið geti haft hag af því að tapa leik.

,,Það er í lagi að liðið sem vinnur Evrópudeildina fari í Meistaradeildina en ég er ekki eins sáttur við að Melsungen viti ekki enn hvort liðið komist þangað og það borgi sig að tapa,“ sagði Guðjón Valur við Oberg Aktuell.

Gummersbach mætir Magdeburg í kvöld klukkan 18:00 en Gummersbach á enn tölfræðilegan möguleika á að ná Fuchse Berlín en til þess þarf Gummersbach að vinna tvo síðustu leiki sína, Berlínarliðið að tapa seinustu tveimur leikjum liðsins og þá má Flensburg ekki vinna Eisenach í leiknum á morgun og Flensburg þarf svo að vinna Fuchse Berlín í lokaumferðinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top